Fjöllin og lífið
Éljagangur gengur á með hléum. Annað hvort sést ekki í fjöllin hér sunnan við fjörðinn eða glaða sólskin. ÁI: Ég sé ekki einu sinni í Hádegisfjallið!
Þegar við keyrðum Reykjanesbrautina suðrá nes síðustu helgi sagði Hugrún: Hvar eru fjöllin? Þau var reyndar hægt að sjá í fjarskalegum fjarska Trölladyngju, Fagradalsfjöll og Keili og hinum megin Snæfellsnessfjallgarðinn. En þau er varla hægt að kalla fjöll í svo miklum fjarska.
Ég spáði líka í því með vestfirskri vinkonu minni hver er eiginlega munurinn á fjöllunum hér fyrir austan og svo fyrir vestan, þar sem við bárum saman að jú það væru svipað há fjöll en ekki eins. Fjöllin hér eru skörðóttari og grófari en fyrir vestan þar sem þau virðast hafa sléttari toppa. Skemmtilegt.
Annað skemmtilegt. Við fórum sem sagt suður á nes í skemmtilegum tilgangi, elsti systursonur Hinriks var fermdur. Það hefur víðtækari þýðingu í okkar augum. Við hófum vistfélag þegar systursonurinn (þá sá eini) kunni ekki einu sinni að ganga… Svo við sem vistfélag höfum starfað ansi lengi, en höfum haft einkaleyfi í um tvö og hálft ár. Það var jú skandall að fyrirtaks framleiðslu okkar hefur verið hægt að afrita og framleiða, ekki gerst sem betur fer, við hefðum stórtapað á því!
Hef verið að sanka að mér ýmiskonar tónlist sem ég/við höfum hlustað á í gegnum tíðina, og herregud hvað það er gott. Það byrjaði á því að við hlustuðum á Pottþétt 5 og 7 í vetur og sum lögin hafa meirað segja slegið í gegn hjá börnunum blessuðum. Þetta lag er til dæmis dásamlega tilfinningabundið en man sem betur fer ekki hvaða unglingatilfinningar voru í gangi, grúví lag http://www.youtube.com/watch?v=Uc_rAX6z9Yc Ég elska tónlist…
Næst á innkaupalista á þetta heimili (fyrir utan að fyrst á lista er annað heimili) er píanó. Ég er til í gefins píanó en annars ætla ég að fjárfesta í ódýrari týpu sem gefur aðeins fleiri möguleika. Svona rafmagnspíanó, ekki hljómborð, rafmagnspíanó. Mig langar líka í gítar… og klarinett held ég bara…
ÁÆ hefur þetta að segja. Jedúddaníbja og hann segir Jesús! í tíma og ótíma.
Held að allir hér séu að fá sumarfrísbrjálæði… Hér hlýða alla vega börnin ekki og foreldrar nenna ekki að taka uppeldið í gegn.
Ég vil taka það fram að ég vinn á frábærum vinnustað, ég er þakklát fyrir samstarfsfólk og yfirmenn. Dásamlegt starf að fá að fræða börn og veita þeim umhyggju og umönnun. Fræðsla, umhyggja og umönnun eru sterk hugtök innan hjúkrunarfræðinnar (ekki satt?) – heppin ég.
Góðar stundir













