Vistmaður Hinrik Þór
Hinrik er smiður að mennt og hefur starfað við það lengi, er nú starfsmaður Alcoa Reyðarfirði, starfar við að keyra skautabíl og fá hrós frá yfirmanni… Hann er sérlega góður trommari og hefur verið í þónokkrum hljómsveitum, má þar nefna m.a: Kasmír, Ask the Slave, Squirt, Kæri Jón, GHG og Ingibjörg, Pimps and ho’s og ýmsar fleiri. Hafa þær verið misfrægar og mislanglífar. Ekki er verra að hann getur sameinað hæfileika sína þannig að hann kann að smíða trommur!!
Hann er eins og flestir aðrir karlmenn og á sér mörg hobbý sem öll eru stór, tímafrek og dýr… förum ekki nánar út í þá sálma…
Hinrik er einnig mikill fjölskyldumaður og nýlega eiginmaður konu sinnar. Hefur hann gefið henni þrjú börn og er duglegur í öllu því sem nútíma faðir þarf að taka sér fyrir hendur.
Hinrik er algjör snillingur og algjör engill.
Og góður trommari er hann já. Það er sko alveg dag satt.