Jólin voru góð, við þakklát og gerðum okkar besta að njóta þessa að vera saman. Alltaf má gera betur.

Nokkrir gullmolar hafa ratað á strendur okkar þessa dagana…

Mamman og börnin sitja við eldhúsborðið og borða ávexti og eftir að hafa leikir rabarbari rabarbari banani banani varð úr ávaxtaupptalning og svo grænmetisupptalning. Við Ásdís sáum um upptalningu og vorum að verða uppiskroppa með grænmeti og hafði Hugrún setið og hlustað á meðan, og þegar færi gafst gall í henni “ekki gleyma kjötinu!!” ;) Þá hlógum við Ásdís eins og vitleysingjar!!

En Ásdís ætlaði sko að leiðrétta móður sína þar á sama tíma og sagði að kartöflur væru ekki grænmeti, ég hélt það nú, rótargrænmeti!! Þá sagði sú gáfaða: Þá hljóta franskar að vera grænmeti…

Ég var að tala við vinnufélaga um fyrirhugaða skíðaferð á morgun og spurði Ásdís þá hvort ég væri að fara á skíði og ég sagðist jú fara á morgun, þá sagði hún eins og hún væri mamma mín: Passaðu bara að slasaði þig ekki…

Í dag fór Ásdís á heimspekilegar umræður eins og stundum: Hvernig varð mannfólkið til? ööö… M: Ertu að meina hvernig börnin verða til? ÁI: Nei, æ þú veist hvernig fólk eins og forseti Íslands og þannig, hvernig þetta byrjaði (ómæ hvað var erfitt að hlæja ekki!!) M: Já ok… Þá kom smá þróunarkenningarútskýring… ÁI: Já en hvernig urðu aparnir til? öööö… Þá kom smá sköpunarsaga… ÁI: Ég veit hvenær Jesú fæddist, 1.desember eða nei sko á jóladag – en hvenær fæddist Guð? öööö… M: Kannski bara alltaf verið til?

Þá vorum við að lesa bókina Stór skrímsli gráta ekki – það fyrsta sem Ágúst segir þegar við opnum bókina og bendir á stóra skrímslið: Þetta er pabbi minn… og svo á hverri blaðsíðu eftir það… Held að Hinrik þurfi aðeins að læra mannasiði eða hvað?

Gaman að þessu :)

Það er gott og styrkjandi að fara með möntrur, meina orðin þegar maður segir þau og fyllast kærleika og sælu við það eitt að raula, humma eða syngja þetta við hvaða aðstæður sem er. Var að læra eina nýja.

I am the light of my soul, I am bountiful, I am beautiful, I am bliss, I am, I am.

Ég er ljós sálarinnar, ég er gnægtarfull, ég er falleg, ég er alsæl, ég er, ég er.

http://www.youtube.com/watch?v=hn6CK_pGkvQ

Hádegisfjall - Reyðarfirði

One Response to “”

  1. Svava Björk says:

    En skemmtilegir gullmolar :) …falleg mynd og styrkjandi mantra:) Sendi knús og kveðju til ykkar allra.

Leave a Reply