Jólasveinninn Mjólkurþambur
Ágúst á erfitt með að sofna sjálfur í rúminu sem hann kemst framúr… Í kvöld tók ég hann úr rúminu hennar Hugrúnar sem var sofandi, þar sem hann var að baksa með bangsana sína út í glugga. Þegar ég set hann í rúmið hans sjálfs átta ég mig á því að hann er í stígvélinu sem hann setti (mögulegt að Ásdís hafi séð um það) út í glugga og gúmmískónum sem Hugrún setti… Minn skór (sem Ásdís notar etv í von um að fá eitthvað fullorðins í) dottinn á gólfið og búið að drekka mjólkina sem var sett fyrir Bjúgnakræki…
Jólasveinarnir sem koma á þennan glugga gleyma stundum að borða það sem þeim er gefið, leysti Ágúst það í kvöld…