Átjándi desember tvöþúsund og ellefu – sex dagar til jóla

Var á veitingastað í kvöld. Fékk þar dýrindis safaríkan og bragðgóðan hamborgara með frönskum, var á fínu verði 950kr. Svo fékk ég mér í eftirrétt ís með fullt af súkkulaði, karamellu og lakkrís hjá öðrum starfsmanni og fékk ísinn á gjafaprís aðeins 2 krónur!! Þegar ég var að gúffa í mig ísnum fóru starfsmennirnir að þrífa afgreiðsluborðið og sögðu að það væri svoooo skítugt út af kóngulónum… Bentu mér svo á eina í loftinu…

Ég þakka vertunum Hugrúnu Elfi og Ásdísi Iðu fyrir viðskiptin.

Þvílík og önnur eins fegurð og friður sem snjór getur fært mér í hjartað. Ég held að þessi veðrátta eigi best við mig – enda birtir til með snjónum í þessu skammdegi hér. Skammdegið er jú einu stigi meira í fjallasal en annarsstaðar. Við höfum horft hér á snjóflyksurnar svífa og fjúka til, gluggarnir fá snjóþekju í kanta svo jólalegheitin verða algjör að mínu mati. Ekki allir sammála því reyndar.

Veðurskilyrðin dempa aðeins útþrá mína sem espist upp þegar vinir flytja úr landi, en ætli sé ekki bara fullt af snjó í Noregi líka? Hvernig á ég að vega og meta öryggi og þægindi búsetunnar hér á móti ævintýraþránni sem þroskar mann um 15 stig? Ég óska hér með eftir ákvarðanaráðgjafa lífs míns. (Ég er greinilega einráð þó á mér hangi fjórir einstaklingar með skoðanir…) Mig vantar hugmynd að starfsferli sem gerir mér kleift að vera sjálfstætt starfandi með fullkomnu öryggisneti og 0% líkum á að allt fari til fjandans… Þarf á því að halda að vera bara í mömmó í nokkrar vikur – kannski einhver til í að leysa mig af í vinnunni?

Var ég búin að segja ykkur hvað Ásdís Iða er að standa sig vel í skólanum??? Rífandi stolt og hrærð kom ég úr foreldraviðtali, nám, samskipti og vellíðan í besta lagi. Einu af mikilvægustu markmiðum gagnvart elsta barninu náð!! Hallelúja!!! Hún á sína bestu vinkonu Bjarteyju Huld og eru þær á svipuðu plani, rólegar og leika mikið í hlutverkaleik og við vitum ekki af þeim þegar þær leika saman, dásamlegt að eiga góða vinkonu!!!

Hugrún Elfur er einnig í flottum gír, dugleg að leika sér og skrifa stafina, telja og kann alla litina. Hún er glöð og kát og alltaf til í að fara í og úr leikskóla. Á sinn besta vin hann Óskar Inga (munið að Ásdís Iða átti sinn besta vin Ólaf Darra…) og þau skottast saman. Hugrún Elfur er full af sögum og ímyndunaraflið fer ansi langt með hana, sögurnar eru dásamlegar en hún ímyndar sér líka ýmislegt í myrkrinu og er oft hrædd greyið.

Ágúst Ægir talar og talar þessa dagana, hefur ekkert verið að flýta sér að segja hlutina fram að þessu en nú segir hann það sem hann þarf að segja. Við skiljum ekki alveg allt en flest! Hann er mikil bílamaður og leikur sér mikið í hlutverkaleik með bíla eða önnur leikföng. Hann er sjálfstæðismaður (ópólitískt) og vill gera allt sjálfur, klæða sig í föt frá A-Ö með pirringi þar sem við á og ég þarf að taka myndband af aðförum hans við að setjast á wc – líkurnar á að hann detti ofaní það eru aðeins of miklar… En það er nú annað gleðiefni, hann er mjög duglegur að pissa í það! Koma alveg slys, en hann sýnir góða takta! Við sjáum fyrir endann á rúmlega 6 ára bleiuskiptingum… (fyrir utan starfsvettvang minn…) HALLELÚJA!!!

Best af öllu er þegar þau leika sér öll saman sem gerist nokkuð oft – þá er bara raðað í hlutverk, einn er mamman, einn er stóra systirin og einn er hundurinn :) og hér er búið að raða í bílinn:

Ásdís Iða og Hugrún Elfur sitja frammí. Ágúst Ægir aftur í með litla barnið hana Kristínu og líklega er hundabúr og ferðataska í skottinu :D

Góðar stundir…