Kærleikur og þakklæti

Kærleikur og þakklæti fylla huga minn með beisku ívafi. Hvers er hverfugleiki lífsins megnugur, fyrir hverja sál, harða eða mjúka. Verður úr ný sál af þeirri gömlu þegar átökin eru slík?

Hugsanir fullar kærleika og þakklæti fyrir: Því sem við höfðum, nutum og elskuðum; Því sem við höfum, önnumst af umhyggju og elskum skilyrðislaust; Því sem framtíðin gefur okkur til handa af öllum sínum mætti, með opnu og kærleiksríku hjarta – svo úr verði það sem við stefnum að í lífinu.

Ég óska öllum þess að hafa hreint markmið í lífinu sem ekki kostar peninga heldur álag á sálina henni til þroska og styrks og ávinna sér kærleika allt í kring. Þakklæti fyrir því sjálfsagða í lífinu er dásamlegt.