Ásdís Iða talar

Í gær vorum við að lesa Jólasveinabókina, mamman og börnin. Þessa mynd skoðuðum við aðeins
Ásdís er mikið að nefna sig og aðra á myndir af fögrum fígúrum eða fólki í sjónvarpi/bókum/blöðum. Hér nefndi hún að sjálfsögðu móður, föður, sig og systkini sín. En glöggir lesendur sjá að þarna eru fjögur börn og hafði þá elsta jólasveinabarnið orðið útundan. Spurði svo og sagði svo móðir hvernig væri ef Ásdís væri elst og svo koll af kolli og þá yngsti ókominn – hvað myndi hún þá nefna þann? Eftir smá umhugsun sagði hún “Glingló” – Þökk sé afa Gumma…

Nú rétt í þessu…
ÁI: Nei Hugrún, nú er Ágúst með púslið og ég er að púsla fyrir hann…
HE: …

Rétt á eftir…
ÁI: Hugrún! Láttu mig hafa bangsann! Þú mátt ekki hafa hann! Þú ÁTT hann ekki!!
HE: Ég á ekki neitt…

Svo var gott svar hjá henni þegar amma Ragna óskaði henni gleðilegs nýs árs og þakkaði fyrir það gamla
ÁI: “Ekkert að þakka!!”

Systkinasleðinn...

Janusullarfötin eru vinsæl á þessu heimili!

ÁÆ

HE

ÁI

Við brennuna á gamlárskvöld

Gleðileg jól og njótið nú lífsins með kærleika, þakklæti og virðingu fyrir öllu og öllum !

3 Responses to “Ásdís Iða talar”

  1. Bústýran says:

    haha.. ég er að pússla fyrir hann, dásamlegt!

    Sæt eruði :)

  2. amma ragna says:

    Já, sæt eruði! Loksins kom svolítið reiðileysi!
    Elsk´ykkur,
    mor

  3. Svava Björk says:

    Þið eruð æði! :)

    Sendi bestu jóla og nýjárskveðju á ykkur öll sömul. Takk fyrir allt gamalt og gott.

    Bryndís jólagjöfin frá þér er hreint út sagt æðisleg, sló algjörlega í gegn! Þú ert selebretí hérna í Kópavoginum:D “Vetlingarnir” verða frábærir í útilegurnar í sumar… hentar líka vel núna þegar ofnakerfið er eitthvað vanstilt í kotinu;)

Leave a Reply